訂正 · 3
A few corrections my teacher brought to the text:
Kína endurskoðar dauðarefsingu
Sjanghæ – Í síðasta mánuði hefur Þjóðardómstóllinn í Kína komið í veg fyrir dauðarefsingu konu sem myrti manninn sinn grimmilega og bútaði hann niður. Sú Þýðingarmikila ákvörðun að senda dómsmálið til baka í héraðsdóm bendir til þess að stuðningur landsins við dauðarefsingu fer minnkandi.
Líklegt virtist að Li Yan, 43 ára, yrði tekin af lífi því Kína ber ábyrgð á meira en 50 prósent aftaka á heimsvísu. Árið 2010 lamdi konan manninn sinn til bana með loftbyssu, bútaði hann niður og sauð líkamspartana. Hinsvegar hafa ljósmyndir lögreglunnar og læknisskýrsla stutt fullyrðingu Li Yan að maðurinn hennar hafi misþyrmt henni með því að drepa í sígarettum á henni, slegið hausnum á henni í vegg og hótað henni með loftbyssunni. Hæstirétturinn hefur ákveðið, réttilega, að fullyrðingin Li Yan réttlætir annað réttarhald.
Dauðarefsingar eru ekki jafn algengar og áður í Kína. Samkvæmt Liu Renwen, lögfræðingi hjá Chinese Academy of Social Sciences, hefur fjöldi aftaka fækkað um helming frá 2007 til 2011. Núna fá margir ofbeldisfullir glæpamenn svokallaða «skilorðsbundna» dauðadóma, sem verða lífstíðardómar með tíð og tíma. Minnkun aftaka á mikinn stuðning hjá þjóðinni.
もっと早く上達したいですか?
この学習コミュニティに参加して、無料の練習問題を試してください!
ご自宅で快適に語学を学べるチャンスをお見逃しなく。経験豊富な語学講師陣の中からお選びいただき、今すぐ最初のレッスンにお申し込みください!
今すぐ学習を始める
